Viðburðir

Alþjóðleg ráðstefna Listaháskólans um rannsóknir í listum var haldin fyrir fullu húsi dagana 3.-4. október 2008. Á ráðstefnunni fluttu framsæknir lykilfyrirlesarar erindi um þau mismunandi sjónarhorn sem hugmyndafræði listrannsókna byggir á, ásamt því sem rætt var um ýmis vandamál er upp koma þegar listir ryðja sér til rúms í fræða- og vísindaheiminum. Auk lykilfyrirlesaranna kynntu listnemendur í doktorsnámi rannsóknarverkefni sín og gáfu ráðstefnugestum þannig innsýn í framkvæmd listrannsókna.

Góðar umræður spunnust meðal áheyrenda og víst er að þessi viðburður hefur skilið eftir sig ógrynni af efni til að vinna úr við uppbyggingu rannsókna í Listaháskólanum. Hér að neðan má sjá smella á nöfn fyrirlesaranna og lesa erindi þeirrra í fullri lengd. Einnig eru myndbandsupptökur aðgengilegar á bókasafni skólans í Skipholti.

Dagskrá ráðstefnu

Lykilfyrirlesarar
Henk Borgdorff
Amsterdam School of the Arts

Mary Anne Francis
Brighton University og Chelsea College of Art & Design, University of the Arts London

Terry Rosenberg
Goldsmiths University

Georg Weinand
Das Arts

Simon Bayly
Roehampton University

Doktorsnemar
Mark Curran
Dublin Institute of Technology and Institute of Art, Design and Technology, Dun Laoghaire

Bryndís Snæbjörnsdóttir
Gothenburg University

Katrine Hjelde
Chelsea College of Art and Design, University of the Arts London