Kynning á Nýsköpunarsjóði námsmanna

Föstudaginn 19. febrúar, kl 12.10-13 í stofu 113 í Skipholti, verður haldin kynning á Nýsköpunarsjóði námsmanna og þeim möguleikum sem hann býður upp á varðandi fjármögnun verkefna.
Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunn- og meistaranámi við háskóla til sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarverkefni.
Umsóknarfrestur árið 2010 er 8. mars.
Nánari upplýsingar er að finna hér: http://www.rannis.is/sjodir/nyskopunarsjodur-namsmanna/
Minnt er á að rannsóknaþjónusta skólans aðstoðar nemendur við útfyllingu umsókna.

