Auglýsing eftir umsóknum í Menntasjóð Listaháskólans
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Menntasjóði Listaháskóla Íslands á haustönn 2009. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni greinargóðar upplýsingar um ástæður styrkbeiðni og yfirlit um hvernig þeir hyggjast verja þeim fjármunum sem sótt er um. Miðað er við verkefni sem fara fram nú á haustönn eða snemma á vorönn 2010.
Allir fastráðnir kennarar við skólann auk stundakennara, sem kenna a.m.k. 50 kennslustundir (jafngildi 25 fræðifyrirlestrum) á önninni, eiga rétt á að sækja um styrki úr sjóðnum.
Við afgreiðslu á umsóknum frá þeim sem áður hafa hlotið styrk úr sjóðnum er litið til þess hvort viðkomandi hafi gert grein fyrir viðkomandi styrkveitingu með greinargerð. Auglýst er tvisvar á ári úr sjóðnum, næst verður auglýst í lok janúar næstkomandi.
Í sérstökum reglum um Menntasjóð segir svo um hlutverk sjóðsins: “Hlutverk námsmenntasjóðs er að auðvelda fastráðnum kennurum Listaháskóla Íslands að sinna sérverkefnum í listgrein sinni og sækja námskeið eða endurmennta sig á sínu sérsviði. Sérverkefni kennara geta verið verkefni sem tengjast listsköpun, rannsóknum og/eða kynningu á listgrein viðkomandi.”
Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna á slóðinni: http://lhi.is/UmLHI/Reglur/Menntasjodur/
Frestur til að skila inn umsóknum rennur út mánudaginn 14. september, kl. 16:00.
Umsóknum skal skila í umslagi merktu “Menntasjóður LHÍ, c/o Ólöf G. Sigfúsdóttir, Skipholti 1, 105 Reykjavík.


