Átak til nýsköpunar

Átak til nýsköpunar

Átak til atvinnusköpunar er styrkáætlun iðnaðarráðuneytisins fyrir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja.  Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með umsóknarferlinu fyrir hönd iðnaðarráðuneytisins.

Umsóknafrestur er til 29. september næstkomandi.

Markmið verkefnisins 

  • Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta.
  • Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla og sprotafyrirtækjum.

Frekari upplýsingar í síma 522- 9000, 522-9267 eða á tinna@nmi.is

Kynning á Rannsóknasjóði

Haldin verður kynning á Rannsóknasjóði þriðjudaginn 8. sept, kl. 12.10-13 í Skipholti 1 (stofu 113). Magnús Lyngdal Magnússon, sviðsstjóri á rannsókna- og nýsköpunarsviði, fer fyrir kynningunni.

Allir kennarar skólans eru hvattir til að mæta og kynna sér þá möguleika og tækifæri sem sjóðurinn býður til fjármögnunar verkefna, eða fá svör við tæknilegum útfyllingaratriðum umsókna.

Auglýst eftir umsóknum í Tækniþróunarsjóð

logo12

Auglýst er eftir umsóknum í Tækniþróunarsjóð. Umsóknarfrestur er til kl. 17 þann 15. september.

Hlutverk sjóðsins er að styðja þróunarstarf og rannsóknir á sviði tækniþróunar sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Sjóðnum er heimilt að fjármagna nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu Vísinda- og tækniráðs.

Mikilvægt er að auka fjölbreytni atvinnulífsins og hraða uppbyggingu þekkingar- og hátæknistarfsemi. Stjórn Tækniþróunarsjóðs telur sjóðinn mæta þessum sjónarmiðum með því að skilgreina nýjar áherslur í samræmi við hlutverk sjóðsins. Sjá nánar hér.


Auglýst eftir umsóknum í Rannsóknasjóð

logo13

Auglýst er eftir umsóknum í Rannsóknasjóð fyrir styrkárið 2010. Umsóknarfrestur er til 1. október 2009.

Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja vísindarannsóknir á Íslandi. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn skilgreind rannsóknarverkefni einstaklinga, rannsóknarhópa, háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja.

Rannsóknasjóður veitir þrenns konar styrki með umsóknafrest 1. október 2009:

* Öndvegisstyrki
* Verkefnastyrki
* Rannsóknastöðustyrki

Styrkirnir eru veittir til allt að þriggja ára í senn. Umsækjendur sem hlutu styrk til verkefna árið 2009 með áætlun um framhald á árinu 2010 skulu senda ársskýrslu til sjóðsins fyrir 11. janúar 2010 en þurfa ekki að endurnýja umsókn.

Allar umsóknir og umsóknagögn skulu vera á ensku, svo að mögulegt sé að senda umsóknir í mat erlendis. Undanþágur eru veittar frá þessari meginreglu ef birtingar á viðkomandi fræðasviði einskorðast við íslenska útgáfu. Í þeim tilvikum skal umsækjandi fá leiðbeiningar hjá starfsmönnum Rannís. Allar umsóknir um öndvegisstyrki skulu vera á ensku, enda eru öndvegisverkefni ávallt metin af erlendum sérfræðingum.

Ítarlegar upplýsingar um Rannsóknasjóð, styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Rannís: http://www.rannis.is/sjodir/rannsoknasjodur/

Auglýst eftir umsóknum í Borgarsjóð

merki1

Reykjavíkurborg veitir ár hvert félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum styrki til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda. Styrkirnir eru ætlaðir viðburðum eða verkefnum sem koma til framkvæmda á næsta ári. Viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á. Styrkveiting felur ekki í sér fyrirheit um frekari skuldbindingar af hálfu Reykjavíkurborgar nema gerður sé sérstakur samningur þess efnis.

Umsókn skal berast eigi síðar en 1. október 2009. Einungis eru teknar til greina umsóknir sem berast innan tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem reglur Reykjavíkurborgar kveða á um. Þeir aðilar sem fengi hafa styrk áður þurfa að skila inn greinargerð um ráðstöfnun þess fjár.

Nánari upplýsingar er að finna á: http://www.rvk.is/DesktopDefault.aspx/tabid-1515

Auglýsing eftir umsóknum í Menntasjóð Listaháskólans

listahaskoli-logo

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Menntasjóði Listaháskóla Íslands á haustönn 2009.  Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni greinargóðar upplýsingar um ástæður styrkbeiðni og yfirlit um hvernig þeir hyggjast verja þeim fjármunum sem sótt er um. Miðað er við verkefni sem fara fram nú á haustönn eða snemma á vorönn 2010.

Allir fastráðnir kennarar við skólann auk stundakennara, sem kenna a.m.k. 50 kennslustundir (jafngildi 25 fræðifyrirlestrum) á önninni, eiga rétt á að sækja um styrki úr sjóðnum.

Við afgreiðslu á umsóknum frá þeim sem áður hafa hlotið styrk úr sjóðnum er litið til þess hvort viðkomandi hafi gert grein fyrir viðkomandi styrkveitingu með greinargerð. Auglýst er tvisvar á ári úr sjóðnum, næst verður auglýst í lok janúar næstkomandi.

Í sérstökum reglum um Menntasjóð segir svo um hlutverk sjóðsins: “Hlutverk námsmenntasjóðs er að auðvelda fastráðnum kennurum Listaháskóla Íslands að sinna sérverkefnum í listgrein sinni og sækja námskeið eða endurmennta sig á sínu sérsviði. Sérverkefni kennara geta verið verkefni sem tengjast listsköpun, rannsóknum og/eða kynningu á listgrein viðkomandi.”

Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna á slóðinni: http://lhi.is/UmLHI/Reglur/Menntasjodur/

Frestur til að skila inn umsóknum rennur út mánudaginn 14. september, kl. 16:00.
Umsóknum skal skila í umslagi merktu “Menntasjóður LHÍ, c/o Ólöf G. Sigfúsdóttir, Skipholti 1, 105 Reykjavík.